![Soffía og Jóhannes búa í fallegu raðhúsi sem byggt var á sjöunda áratugnum.]()
Jóhannes Ómar Sigurðsson, eigandi verslunarinnar Fakó, býr í fallegu raðhúsi sem var byggt á sjöunda áratugnum. Jóhannes og fjölskylda fluttu í húsið árið 1980 og hafa síðan þá haldið því vel við. Nýverið tóku þau baðherbergi hússins í gegn og settu hita í öll gólf svo eitthvað sé nefnt. Jóhannes og eiginkona hans, Soffía Kristjánsdóttir, hafa þá notið aðstoðar innanhússhönnuðar
við að setja punktinn yfir i-ið.