![Auðunn Ingi Ragnarsson, sölumaður hjá Agli Árnasyni.]()
„Ljósir litir og stór borð er það sem einkennir parket-söluna um þessar mundir. Létt hvíttuð eik er vinsælust núna,“ segir Auðunn Ingi Ragnarsson, sölumaður hjá Agli Árnasyni, spurður út í tískustrauma í gólfefnum þessa stundina. „Við höfum undanfarið verið að auka úrval okkar í mynstruðum flísum. Við höfum á stuttum tíma tekið inn tvo nýja flísaframleiðendur sem sérhæfa sig í mynstruðum flísum.“