![Speglaveggurinn í H&M er búinn til af Glerborg.]()
Eins og ekki hefur farið fram hjá neinum opnaði H&M með glæsibrag í síðustu viku. Í versluninni eru 1.000 fm af speglum en annað eins speglamagn hefur ekki sést í verslun, hvorki hérlendis né í öðrum H&M-verslunum úti í heimi. Rúnar Árnason hjá Glerborg segir að fyrirtækið hafi fengið mikið hrós fyrir speglana frá gæðastjórum H&M sem komu frá Danmörku til að taka verslunina út.