![Lilý Erla Adamsdóttir opnaði sýningu í gær í SÍM salnum.]()
Lily Erla Adamsdóttir myndlistarmaður og skáld er menntuð í listum með sérhæfingu í textíl. Hún flutti til Íslands fyrir ári síðan og nú opnar hún sína fyrstu sýningu í SÍM salnum í Hafnarstræti. Hún er fagurkeri fram í fingurgóma og segir að textíllinn skipi stóran sess í daglegu lífi fólks.