![Gunnar Sverrisson og Halla Bára Gestsdóttir eru byrjuð með hlaðvarpsþátt sem allir heimilisunnendur mega ekki missa af.]()
Hjónin Halla Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson reka vefinn Home and Delicious. Þau eru þekkt á sínu sviði, hún sem innanhússhönnuður og hann sem ljósmyndari. Á sínum ferli hafa þau ritstýrt tímaritum, gefið út bækur og haldið námskeið. Nú eru þau byrjuð með hlaðvarp á vefnum sínum um heimili og öllu sem því fylgir.