![Ingunn Embla Axelsdóttir segir að hún laðist að björtum litum út af skammdeginu hér á landi.]()
Ingunn Embla Axelsdóttir sölukona í Geysi segist vera sérvitur fagurkeri, kattaraðdáandi og mikil áhugamanneskja um liti. Hún býr með móður sinni, kettinum Lóru og tveimur yngri systkinum og segir að litagleðin heima sé svo mikil að hún lýsi heimilinu sem litaglöðu á sterum.