![Julia Roberts er að selja íbúðina sína.]()
Leikkonan Julia Roberts hefur nú sett New York-þakíbúðina sína á sölu. Íbúðin er á besta stað í Greenwich Village og ásett verð er 611,7 milljónir króna samkvæmt fasteignavef 6sqft.com. Roberts og eiginmaður hennar, Danny Moder, keyptu íbúðina árið 2010 á 530 milljónir króna.