![Berglind fann þennan einstaka stól á brennu, hann var alveg heill.]()
„Ég man að ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég sá stólinn á brennunni. Stóllinn reyndist alveg heill,“ segir Berglind Gestsdóttir sem fann fallegan stól á brennu fyrir skömmu. Nú er Berglind búin að koma stólnum fyrir í notalega bústaðnum sínum og sómir hann sér vel þar.