![]()
Við Logaland í Fossvogi stendur glæsilegt 201 fm raðhús á besta stað fyrir neðan götu. Húsið er mikið uppgert og meðal annars með eldhúsinnréttingum og fataskápum sem Hanna Stína innanhússarkitekt hannaði. Hvítt sprautulakkað og eik mætast í eldhúsinu og á veggnum fyrir ofan eldavélina er fallega flísalagður veggur.