![Þórey Einarsdóttir er stjórnandi HönnunarMars.]()
HönnunarMars 2020 frestað frá mars fram í júní vegna kórónuveirunnar. Stjórnendur hátíðarinnar hafa fylgst grannt með öllum vendingum er varða samkomubann, fjöldatakmarkanir, möguleika á ferðalögum til og frá landinu og breytt áætlunum um hátíðina jafnóðum eftir því sem fréttir berast. Í ár mun hátíðin fara fram með breyttu sniði.