![Guðrún Finns heldur úti heimasíðunni www.gudrunfinns.is. Þar skrifar hún einna helst um heimili og hönnun.]()
Guðrún Finns er 24 ára gamall fagurkeri sem heldur úti heimasíðunni www.gudrunfinns.is. „Þar blogga ég um mitt helsta, og eiginlega eina, áhugamál - heimilið.“ Guðrún segist hafa gaman af því að breyta til í kringum sig. „Svo er ég örlítill sveimhugi og finnst gaman að hafa nóg fyrir stafni,“ útskýrir Guðrún.