![Guðdómlega lagt á borð.]()
Svana Lovísa Kristjánsdóttir vöruhönnuður hefur haldið úti bloggsíðunni Svart á hvítu síðan 2009. Hún elskar að gera fallegt í kringum sig og finnst gaman að leggja á borð. Það sást best á bloggsíðu hennar á dögunum þar sem hún lagði á áramótaborðið. Þemað í ár er svolítið svart og hvítt með dass af gulli og bleiku.