Mörgum fasteignaeigendum svíður upphæðin sem greidd er til fasteignasalans við sölu. Grétar Jónsson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, útskýrir hér hvað liggur að baki þóknun fasteignasalans.
Ásdís Mercedes Spanó, myndlistarmaður, kennari og ráðgjafi á sviði myndlistar, raðar ólíkum listaverkum saman á vegg heima hjá sér. Hún breytir til reglulega og færir verk á milli staða.
Það getur verið vandasamt að skipuleggja lítil rými svo allt líti vel út og auðvelt sé að ganga um. Í herbergi sem auglýst var í Facebook-hópnum „Leiga RVK 107, 105, 103, 104, 108“ er sturtuklefinn til dæmis við rúmstokkinn.
Parið Sigurjón Kári Sigurjónsson og Sóley Ósk Erlingsdóttir er að koma sér fyrir í sinni fyrstu íbúð. Þau náðu að safna fyrir útborgun með því að búa lengur í foreldrahúsum, lifa spart og leigja íbúðina út í ár eftir að þau keyptu hana.
Innanhússhönnuðurinn Sara Dögg Guðjónsdóttir er sérlega fær þegar kemur að litavali inn á heimilið. Hún segir að litapallettan sé að breytast mikið og nefnir að þessi kaldi grái tónn sem hefur verið svo vinsæll á heimilum landsmanna sé að víkja fyrir hlýrri tónum. Sara Dögg er með litaráðgjöf í Slippfélaginu í tilefni af litadögum en svo er hún líka önnum kafin í sínum eigin verkefnum.
Við Laufengi í Grafarvogi stendur afar hugguleg 85,7 fm íbúð sem búið er að endurnýja mikið. Íbúðin stendur í húsi sem byggt var 1992 og hefur verið nostrað við íbúðina.
Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Þorsteinsson sem reka arkitektastofuna Minarc í Kaliforníu fengu það verkefni að endurgera íbúð í Westwood í Kaliforníu.
Steinunn býr ásamt eiginmanni sínum, Birgi Ármannssyni rafvirkja, og einkasyninum Tómasi Erni á annarri hæð í sætu steinhúsi við Hringbraut í Hafnarfirði.
Fasteignasalinn Matthildur Sunna Dan Þorláksdóttir býr í hlýlegri leiguíbúð í Vesturbænum. Húsnæðið hefur hún gert að sínu eigin með því að mála flesta veggi dökka, sem henni finnst róandi. Draumurinn er þó að komast í eigið húsnæði.
Valgeir Sigurðsson tónlistarmaður og upptökustjóri hefur sett einbýlishús sitt í Seljahverfi í Reykjavík á sölu. Í húsinu hefur hann rekið hljóðverið Gróðurhúsið, sem notið hefur vinsælda.