![Almar Alfreðsson er maðurinn á bak við Jón í lit veggplattana. Nýjasti plattinn er í húmbláum.]()
Í dag var nýjasta útgáfan af veggplattanum Jón í lit frumsýnd, nýjasti veggplattinn er í lit sem kallast húmblár. „Það var í froststillunum og vetrarkyrrðinni í byrjun árs, þegar himinninn var svo einstaklega fallegur í ljósaskiptunum hér fyrir norðan, sem okkur datt í hug að reyna að ná fram þessum fallega bláa lit,“ segir vöruhönnuðurinn Almar Alfreðsson.