![Ljósblái sófinn í stofunni eru úr IKEA og setur hann svo sannarlega punktinn yfir i-ið í stofunni.]()
Við Stigahlíð í Reykjavík stendur afar skapandi og fallega stíliseruð íbúð sem er búin litríkum og fallegum húsgögnum. Í stofunni setur stór hornsófi úr IKEA svip sinn á stofuna og röndótta IKEA mottan nýtur sín vel á gólfinu við sófann. Blái liturinn á sófanum kemur með ferskan blæ inn á heimilið sem er svo sjarmerandi.