![Mandy Moore vill losna við húsið samkvæmt heimildum TMZ.]()
Fyrrverandi stjörnuparið Mandy Moore og Ryan Adams reyna nú ólm að selja húsið sitt sem þau bjuggu í á meðan allt lék í lyndi. Húsið er í Los Angeles og ásett verð er 394 milljónir króna. Verðið mun þykja allt of hátt fyrir eignina en fasteignasalinn er viss um að staðsetningin sé tæplega 400 milljóna króna virði.