![Húsið í herberginu er ansi vel heppnað.]()
Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir býr í Reykjanesbæ ásamt manni sínum og dóttur. Húsið var byggt 1960 og er á tveimur hæðum. Þegar Jóna Hrefna og hennar maður keyptu húsið var búið að taka það allt í gegn. Inni í barnaherberginu er „hús“ á tveimur hæðum sem gerir barnaherbergið að algeru ævintýraherbergi. Fyrrverandi eigandi hússins, sem er jafnframt húsasmiður, smíðaði það og segir Jóna Hrefna að það vekji alltaf jafnmikla lukku.