Quantcast
Viewing all 2836 articles
Browse latest View live

Drottning Skreytum hús í jólaskapi

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Soffía Dögg Garðarsdóttir er komin í jólaskap.
Soffía Dögg Garðarsdóttir tekur jólin með trompi. Hún elskar að skreyta og búa til sérstaka stemningu um jólin. Hvert einasta herbergi í húsinu fær á sig jólaljóma með ljósi, skrauti og greni.

H&M Home opnar 420 fm búð í Smáralind

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Lovísa Guðmundsdóttir, verslunarstjóri H&M  Home.
„Að gera heimilið jólalegt þarf alls ekki að kosta formúu. Hengdu upp nokkra fallegar jólakúlur í gluggann, komdu fyrir púðaverum í sófanum með fallegum jólaboðskap eða hlýlegum gervifeldi, kveiktu á ilmkertum sem anga af kanil og greni og og njóttu þess að slaka á í þínu eigin jólalandi,“ segir Lovísa.

Endurhönnuðu blokkaríbúð í Breiðholti

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Glerveggur stúkar af stofu og sjónvarpsherbergi. Það gerir það að verkum að birtan flæðir óhikað um rýmið.
Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir eigendur HAF Studio endurhönnuðu íbúð í Breiðholti á spennandi hátt.

165 milljóna einbýli við Túngötu

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Mýkt er áberandi í þessu huggulega húsi við Túngötu í Reykjavík. Klassísk húsgögn prýða heimilið og falleg listaverk.

Framúrskarandi heimili við sjóinn

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Í Kársnesinu í Kópavogi er að rísa splunkunýtt hverfi sem býr yfir miklum sjarma. Byggðin er við sjóinn sem þýðir fallegt útsýni og friðsæld og nálægð við stórbrotna náttúru. Við Hafnarbraut 9 stendur ákaflega falleg íbúð sem búið er að innrétta á smekklegan hátt.

Kristborg Bóel losar sig við 300 hluti

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Krisborg Bóel Steindórsdóttir ætlar að losa sig við 300 hluti í desember.
„Í desembermánuði mun ég í heildina losa mig við 300 hluti af heimilinu, hluti, föt eða annað sem ekki hefur lengur hlutverk hjá okkur og eiga skilið að eignast innihaldsríkara framhaldslíf annarsstaðar.“

Afi Herborgar smíðaði húsgögnin

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Skemmtileg hverfaplaköt prýða heimili Herborgar Sörensen en plakötin hannaði hún sjálf.
Herborg Sörensen er búin að koma upp sér upp fallegu heimili í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni. Áður bjó Herborg bæði í Barcelona og Cambridge og varð það til þess að hún ákvað að hanna sín eigin hverfaplaköt með staðsetningarbendli undir nafninu Gjugg í borg.

Breytti draslherberginu í höll

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Dee Murphy birti fyrir- og eftirmynd á Instagram sem sýnir ótrúlegan mun á herberginu eftir sex vikna vinnu.
Það kannast margir við að aukaherbergið á heimilinu endi eins og ruslakompa. Hönnuðurinn Dee Murphy tók sig til og gjörbreytti slíku herbergi á heimili sínu í gestaherbergi og er útkoman dásamleg.

Mjúk jólateppi eru fullkomin jólagjöf

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Þetta teppi fæst í Rammagerðinni.
Þeir sem eru að leita að mjúkum hlýjum gjöfum fyrir jólin ættu að skoða ullarteppin í Rammagerðinni. Þau eru hönnuð af Védísi Jónsdóttur fyrir Rammagerðina í samstarfi við Ístex.

Hvíta jólatréð lifir enn góðu lífi

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Hödd Vilhjálmsdóttir er komin í jólaskap.
Hödd Vilhjálmsdóttir lögfræðingur og almannatengill á afmæli 21. desember og því eru jólin svolítið hennar tími þótt hún vilji ekki kannast við það að vera mesta jólabarn í heimi.

Hjónarúmið í aðalhlutverki í stofunni

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Við Njálsgötu í Reykjavík hefur fjölskylda búið sér fallegt heimili. Hjónaherbergið er inni í stofunni og býr til heillandi heildarmynd.

Algeng hönnunarmistök í svefnherberginu

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Mjúkir tónar hafa góð áhrif í svefnherberginu.
Þó að fólk geri fátt annað en að sofa í svefnherberginu ætti herbergið ekki að bíða afgangs. Listaverk og fjölbreytt lýsing er meðal þess sem ætti að fá að njóta sín í svefnherberginu líkt og í stofunni.

Svona bjuggu Katrín og Pippa

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Katrín hertogaynja og Pippa systir hennar bjuggu í íbúð sem foreldrar þeirra eiga í London.
Áður en Katrín gekk að eiga Vilhjálm Bretaprins bjó hún með systur sinni í notalegri íbúð í eigu foreldra þeirra í Chelsea-hverfinu í London.

Heimilislæknir selur rándýrt hús við sjóinn

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Sæbraut 17 er glæsilegt hús og stendur við sjóinn á Seltjarnarnesi.
Heimilislæknirinn Torbjörn Andersen og eiginkona hans, Eygló Jónsdóttir, hafa sett einbýlishús sitt við Sæbraut 17 á sölu.

Rut Kára: „Svörtu-loftin stækka rýmið“

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Hér má sjá nýju litapallettuna. Hér er búið að mála loftin svört mött. Rut segir að þetta stækki rýmið.
Rut Káradóttir innanhússarkitekt hefur verið leiðandi í hönnun á íslenskum heimilum síðan hún kom heim úr námi frá Ítalíu fyrir meira en tveimur áratugum. Hún notar sitt eigið heimili sem tilraunastofu og segir að það sé miklu betra að selja fólki sem hún er að hanna fyrir hugmyndir þegar það getur séð hvernig hlutirnir líta út í raun og veru. Hún segir líka að það að fá innanhússarkitekt spari fólki mikla peninga.

Húsið sem Ármann færði yfir á konuna

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku.
Ármann Þorvaldsson skráði einbýlishús þeirra hjónanna, Dyngjuveg 2, á eiginkonu sína, Þórdísi Edwald árið 2011 eða 18. apríl það ár.

Litur ársins 2019 afhjúpaður

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Pantone valdi litinn  „Living Coral“ sem lit ársins 2019.
Ertu ekki til í að mála stofuna bleikrauða? Litur ársins 2019 er bæði skemmtilegur og hlýr og ákveðið svar við þeim tækniheimi sem við lifum í.

Heiða og Guðmundur selja Öldugötu

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Heiða Kristín Helgadóttir og Guðmundur Kristján Jónsson.
Hjónin Heiða Kristín Helgadóttir framkvæmdastjóri Niceland og Guðmundur Kristján Jónsson hafa sett íbúð sína við Öldugötu á sölu.

Fiskbúð breytt í hárgreiðslustofu

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Hrafnhildur Arnardóttir hárgreiðslumeistari og eigandi Greiðunnar.
Sigga Heimis iðnhönnuður hannaði hárgreiðslustofuna Greiðuna sem flutti í húsnæði þar sem fiskbúð var áður til húsa á Háaleitisbraut.

Keypti hús Eiðs Smára og Ragnhildar

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Erna Gísladóttir er eigandi BL efh. Afi hennar stofnaði B&L árið 1954 og hún  var forstjóri þess er það var selt árið 2007. Hún er einn hluthafa og stjórnarformaður Sjóvár og á einnig sæti í stjórn Haga.
Sumarhús Eiðs Smára Guðjohnsen og Ragnhildar Sveinsdóttur komst í fréttir á árinu þegar þau settu það á sölu. Bílaumboðið BL ehf. keypti sumarhúsið.
Viewing all 2836 articles
Browse latest View live


<script src="https://jsc.adskeeper.com/r/s/rssing.com.1596347.js" async> </script>